Creativity

Innovation

Originality

Imagination

 

Salient

Salient is an excellent design with a fresh approach for the ever-changing Web. Integrated with Gantry 5, it is infinitely customizable, incredibly powerful, and remarkably simple.

Download

Gítarnám fyrir byrjendur og styttra komna! gitar strakur

Tónlistarskóli Árbæjar býður upp á gítarám fyrir byrjendur og styttra komna nú á haustönn. Kennt er í litlum hóptímum (4 saman í hóp) í umsjón gítarkennara. Hver tími er ein kennslustund (40 mín)

Kennslan fer fram á eftirtöldum stöðum: Ingunnarskóla, Norðlingaskóla og í Krókhálsi.

Í tímum eru notaðir gítarar í hæfilegri stærð fyrir yngri nemendur.  Sameiginleg verkefni eru unnin í tímum.

Námskeiðið notast við speglaða kennslu, (flipped classroom)  þ.e. námsefni er tekið upp á myndband fyrir nemendur. Þeir geta svo nálgast kennsluefnið á vefsíðu námskeiðsins.  Einnig fá nemendur kennsluefni í tímum.

 

Markmið námsins er fyrst og fremst að nemendur getið spilað einföld lög og æfingar en minni áhersla á nótnalestur.

Leiðbeinandi aldur er 8 ára og eldri. (Yngri nemendum er bent á forskóla Tónlistarskóla Árbæjar).

 

Stefnt er að því  að tímarnir verði sem fyrst eftir skólatíma. Ef unnt reynist að koma námskeiði fyrir á skólatíma mun það gert í samráði við foreldra og umsjónarkennara.

Námskeiðið er tilvalið fyrir börn sem sýnt hafa hljóðfæranámi áhuga og fá þannig tækifæri til að kynnast hljóðfæranámi  í raun.

Umsóknir sendist á tölvupósti á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.   Þar skal koma fram nafn, kennitala, bekkur og skóli nemanda.

 

Frístundakort Reykjavíkurborgar má nota til greiðslu þáttökugjalda.

 

Birt með fyrirvara um þáttöku.