Creativity

Innovation

Originality

Imagination

 

Salient

Salient is an excellent design with a fresh approach for the ever-changing Web. Integrated with Gantry 5, it is infinitely customizable, incredibly powerful, and remarkably simple.

Download

Fréttir

Ágætu nemendur og forráðamenn! 

Föstudaginn 22.maí var síðasti kennsludagur vetrarins hér í Tónlistarskóla Árbæjar.  sumar

Óvenjulegu og skrítnu skólaári er hér með lokið. Covid19 faraldurinn hefur sett marga hluti úr skorðum en við höfum reynt að bregðast við með því að færa kennsluna yfir í fjarkennslu, sem reyndar gekk ótrúlega vel. Ber að þakka jákvæðu viðhorfi ykkar, nemenda og forráðamanna og kennara að svo vel gekk eins og raun ber vitni. 

Ein af afleiðingum Covid19 er að okkur er ekki heimilt að halda hefðbundna vortónleika. 

Í stað þeirra höfum við tekið upp myndbönd eða hljóðupptökur hjá flestum (eins og við verður komið)  sem hafa verið sendar  til ykkar flestra núna við lok skólaársins. 

Ekki verður um eiginlegar einkunnir að ræða að þessu sinni, enda féll prófavikan okkar niður. Nemendur hafa allir fengið umsagnir sem nálgast má á MÍNAR SÍÐUR af heimasíðu skólans. (Rafræn skilríki) 

Þar má einnig sjá mætingar og ýmsar upplýsingar sem skipta ykkur máli. 

Upplýsingar um námið í haust má finna á starfsáætlun skólans hér á heimasíðunni. Við hjá Tónlistarskóla Árbæjar óskum ykkur gleðilegs sumars og þökkum samstarfið á vetrinum! 😊

 

Skólastjóri, kennarar og starfsfólk Tónlistarskóla Árbæjar 

Ágætu nemendur    sumardagurinn fyrsti

sumardagurinn fyrsti er á morgun þann 23.apríl 

Sumardagurinn fyrsti er frídagur og því engin kennsla. 

Gleðilegt sumar 

Ágætu nemendur og forráðamenn   paska professor

Páskafrí hefst frá og með mánudeginum 6.apríl. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 5. apríl 

Minnum á endurinnritunina! (sendur hefur verið út póstur varðandi það) 

Gleðilega páska

Ágætu nemendur og forráðamenn

nú höfum við hjá Tónlistarskóla Árbæjar tekið þá  ákvörðun að frá og með miðvikudeginum 25.mars 2020 munum við  færa allt tónlistarnám  í fjarkennslu. 

Þetta er gert í samræmi við óskir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og í ljósi nýjustu frétta af Covid19 faraldrinum. 

Hér er tilvitnun í bréf frá skóla- og frístundasviði þessu að lútandi: 

"Þetta erindi er skrifað fyrir hönd skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. 

Hvatt er eindregið til fjarnáms á sviði tónlistarkennslu þar sem því verður við komið en ítrustu sóttvarna í þeim tilvikum sem það er ekki hægt. Gildir það um alla kennslu, líka einstaklingskennslu, allra aldurshópa. Þetta er gert í ljósi hertra aðgerða gegn samfélagssmiti Covid19 á Íslandi”

Tilvitnun lýkur

Við hjá Tónlistarskóla Árbæjar nýtum okkur Google Meet. Allir kennarar eru með aðgang að því fundarforriti sem er einfalt og þægilegt í notkun. Hér er hlekkur á leiðbeiningarmyndskeið um notkun forritsins. Þið fáið sent tölvupóst með fjarfundarboði og eftir það leiðir eitt af öðru sjálfkrafa. Þið hlaðið niður smáforritinu Google Meet og tengist úr hvaða síma eða snjalltæki sem er. 

Við reynum eftir fremsta mætti að halda tímasetningu  tímana eins og þeir eru. Kennarar munu verða í sambandi vegna frekari útfærslu á kennslutímunum. 

Það gefur augaleið að við leitum til ykkar foreldra um aðstoð, sér í lagi fyrir yngstu nemendurna. Hjálpumst að við að komast í gegnum þetta tímabundna ástand. 

með góðri kveðju 

Stefán S. Stefánsson 

skólastjóri Tónlistarskóla Árbæjar

Kæru nemendur og forráðamenn við Tónlistarskóla Árbæjar      

covidStaða tónlistarskólans í dag er þessi:

Samkvæmt tilmælum þar til bærra yfirvalda:

Við megum ekki kenna inni í grunnskólum. Öll kennsla sem þar fór fram færist í Krókháls eins og hægt er.
Hóptímar falla niður.
Nemendum í sóttkví er boðið upp á fjarnámstíma á sama tíma og þeirra kennslustundir eru.

Skólinn notast við Google Meet hugbúnaðinn í þeirri kennslu.
Fari kennari í sóttkví mun hann sinna sínum nemendum í fjarnámi.

Skólinn fylgir öllum leiðbeiningum sóttvarnarlæknis um sótthreinsun og fjarlægð við nemendur.
Við bendum nemendum sem eru í sóttkví að mæta EKKI í tíma, heldur nýta sér fjarkennsluna.
Stöndum saman og styðjum hvort annað! Þetta tekur endi

Skólastjóri

 

Ekki missa af þessu!
Band Flyer