Creativity

Innovation

Originality

Imagination

 

Salient

Salient is an excellent design with a fresh approach for the ever-changing Web. Integrated with Gantry 5, it is infinitely customizable, incredibly powerful, and remarkably simple.

Download

Fréttir

Jólatónleikarnir verða í  Árbæjarkirkju á laugardaginn 14.desember og  verða þrískiptir    arbaejarkirkja jol 663 600x336

Nemendur fá nákvæmari tímasetningar frá kennurum sínum.  Efnisskrár verða birtar hér á vefnum samdægurs. 

Kennt verður í vikunni á eftir jólatónleikunum 16. til 18. desember. Jólafríið hefst fimmtudaginn 19. desember 

Athugið að ekki spila allir nemendur á þessum tónleikum enda ekki rými til þess. Markmið skólans er að hver nemandi komi fram að minnsta kosti einu sinni til tvisvar á tónleikum á hverjum vetri. 

Allir velkomnir!

Vinasamlegast athugið að lokað er á skrifstofu skólans föstudaginn 13.desember vegna jarðarfarar. 

Skólastjóri

Samkvæmt tilmælum frá Reykjarvíkurborg er fólki ekki ráðlagt að vera á ferð eftir kl. 15.00 í dag. Kennsla fellur því niður samkvæmt því.     Ovedur
Athugið að skrifstofa skólans er lokuð í dag vegna veðurs.
Vinsamlega sendið tölvupóst ef þið þurfið að ná sambandi.
 
með góðri kveðju
 
Skólastjóri

 

Jólalegir og notalegir tónleikar voru í Borgarbókasafni Árbæjar þann 5.desember.  Borgarbókasafn 5des

Nemendur léku verk sín í anda jólanna og bókasafnið bauð upp á glögg og piparkökur.

Tónleikarnir eru hluti af stefnu Tónlistarskóla Árbæjar að færa tónlistarnámið meira út í nærumhverfið og gekk svo vel að aðrir tónleikar eru fyrirhugaðir þann 5.desember

Næstu tónleikar verða svo í Árbæjarkirkju á laugardaginn eftir viku, 14.desember. 

jolaskraut

Heimilislegir og notalegir tónleikar voru í Borgarbókasafni Árbæjar þann 21.nóvember. Nemendur léku verk sín fyrir gesti og gangandi og var gerður góður rómur af.     borgarbokasafn 2019

Tónleikarnir eru hluti af stefnu Tónlistarskóla Árbæjar að færa tónlistarnámið meira út í nærumhverfið og gekk svo vel að aðrir tónleikar eru fyrirhugaðir þann 5.desember

Má gera ráð fyrir að þar heyrist svo sem eitt eða tvö jólalög 

Foreldravika í Tónlistarskóla Árbæjar 2019

Í næstu viku 18. til 22. nóvember, er foreldravika í Tónlistarskóla Árbæjar.   boy piano 300x226

Því bjóðum þér/ykkur að koma í kennslutíma til nemandans, fylgjast með námsframvindu, spyrja spurninga og annað sem lýtur að námi nemandans.  
 Gott er að hafa samband við kennara áður  og láta vita af komu ykkar.
Það er markmið okkar hjá Tónlistarskóla Árbæjar að halda uppi góðu og ítarlegu sambandi við foreldra og forráðamenn um skólastarfið. 

Eigir þú ekki heimangengt í næstu viku viljum við bjóða þér til foreldraviðtals síðar, á tíma sem ákvarðaður er af kennara og ykkur í sameiningu. 

Vonumst til að sjá ykkur sem flest!

Vetrafrí við  Tónlistarskóla Árbæjar
Nemendur og forráðamenn vinsamlegast athugið: 

Vetrarfrí verða við Tónlistarskóla Árbæjar                          
  • fimmtudaginn 24. október, 
  • föstudaginn 25. október  
  • mánudaginn 28.október. 

Engin kennsla fer fram við skólann. Flestir grunnskólar eru lokaðir þessa daga. 

Tónlistarskóli Árbæjar fylgir starfsáætlunum grunnskóla í Árbæjarhverfinu að svo miklu leyti sem það er mögulegt.
 
Starfsáætlun skólans er þannig byggð upp að nemendur munu ekki missa úr tíma, heldur lengist skólaárið um þennan dagafjölda. 

Vinsamlegast látið skólann vita ef börn verða lengur frá vegna ferðalaga og þess háttar.
Það er von okkar að vetrarfríið reynist fjölskyldum kærkomið tækifæri til að njóta skemmtilegra samvista.

með góðri kveðju
Stefán S. Stefánsson
Skólastjóri