Creativity

Innovation

Originality

Imagination

 

Salient

Salient is an excellent design with a fresh approach for the ever-changing Web. Integrated with Gantry 5, it is infinitely customizable, incredibly powerful, and remarkably simple.

Download

Fréttir

Foreldravika í Tónlistarskóla Árbæjar 2019

Í næstu viku 18. til 22. nóvember, er foreldravika í Tónlistarskóla Árbæjar.   boy piano 300x226

Því bjóðum þér/ykkur að koma í kennslutíma til nemandans, fylgjast með námsframvindu, spyrja spurninga og annað sem lýtur að námi nemandans.  
 Gott er að hafa samband við kennara áður  og láta vita af komu ykkar.
Það er markmið okkar hjá Tónlistarskóla Árbæjar að halda uppi góðu og ítarlegu sambandi við foreldra og forráðamenn um skólastarfið. 

Eigir þú ekki heimangengt í næstu viku viljum við bjóða þér til foreldraviðtals síðar, á tíma sem ákvarðaður er af kennara og ykkur í sameiningu. 

Vonumst til að sjá ykkur sem flest!

Vetrafrí við  Tónlistarskóla Árbæjar
Nemendur og forráðamenn vinsamlegast athugið: 

Vetrarfrí verða við Tónlistarskóla Árbæjar                          
  • fimmtudaginn 24. október, 
  • föstudaginn 25. október  
  • mánudaginn 28.október. 

Engin kennsla fer fram við skólann. Flestir grunnskólar eru lokaðir þessa daga. 

Tónlistarskóli Árbæjar fylgir starfsáætlunum grunnskóla í Árbæjarhverfinu að svo miklu leyti sem það er mögulegt.
 
Starfsáætlun skólans er þannig byggð upp að nemendur munu ekki missa úr tíma, heldur lengist skólaárið um þennan dagafjölda. 

Vinsamlegast látið skólann vita ef börn verða lengur frá vegna ferðalaga og þess háttar.
Það er von okkar að vetrarfríið reynist fjölskyldum kærkomið tækifæri til að njóta skemmtilegra samvista.

með góðri kveðju
Stefán S. Stefánsson
Skólastjóri
 

Nú stendur yfir tónleikaröð Tónlistarskóla Árbæjar      TA skolar i arbaejarhverfi

Þriðjudaginn 8.oktbóber verðum við í Selásskóla kl.18.00

Miðvikudaginn 9.október verðum við í Norðlingaskóla kl.18.00

Fimmtudgainn 10.október verðum við í Ingunnarskóla kl.18.00 

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir :) 

Þar koma fram nemendur úr eftirfarandi skólum: 

  • Ártúnsskóla
  • Selásskóla
  • Árbæjarskóla
  • Norðlingaskóla
  • Ingunnarskóla 
  • Grandaskóla

Góða skemmtun!

Skólastarfið 2019-2020 að hefjast !

Sumarið hefur leikið við okkur sunnlendinga í sumar en nú líður að nýju skólaári!     skolinn ad hausti
 
Vonandi hafa allir átt gott og gleðilegt sumarfrí. Okkur hjá Tónlistarskóla Ábæjar hlakkar mikið  til að hitta nýja og eldri nemendur nú í næstu viku. en þá hefst starf við Tónlistarskóla Árbæjar. 
 
Móttökudagar 
Móttökudagar verða í næstu viku og munu þeir eiga sér stað á Krókhálsi 5 (og 5a) 3h. 
 
Athugið að lyfta er í Krókhálsi 5a. 
 
Á móttökudögum hitta nemendur kennara sinn, ganga frá tímum, ræða námsgögn, gengið er frá greiðslu skólagjalda ofl. 
Kennarar munu hafa samband bráðlega upp á nánari tímasetningar. 
Móttökudagar verða á þessum dögum: 

Miðvikudagur 21.ágúst: 
  • Með áherslu á nemendur í Ingunnarskóla. 
  • Staðsetning: Krókhálsi 5 (og 5a) 
  • Nemendur hitti kennara sinn með stundartöflu og gangi frá innritun. 
  • Tími: 14.00 til 18.30

Fimmtudagur 22.ágúst
  • Með áherslu á nemendur í Norðlingaskóla. 
  • Staðsetning: Krókhálsi 5 (og 5a) - 
  • Nemendur hitti kennara sinn með stundartöflu og gangi frá innritun. 
  • Tími: 14.00 til 18.30    

Föstudagur 23.ágúst
  • Með áherslu á nemendur í Selásskóla og Krókhálsi. 
  • Staðsetning: Krókhálsi 5 (og 5a) 
  • Nemendur hitti kennara sinn með stundartöflu og gangi frá innritun.  
  • Tími: 14.00 til 18.00 

Vinsamlegast bókið tíma með kennara til að forðast bið. 

Kennarar munu hafa samband við ykkur en sjálfsagt að hafa samband við þá ef þið viljið hafa samband við þá beint.  Hér eru netföng og símanúmer kennara.

 

Ágætu nemendur og forráðamann

Þökkum ánægjulegt samstarf á árinu og sendum hér með slóð inn á Facebook síðu okkar. Þar má finna nokkrar myndir af þessum ágætu listamönnum sem stigu þar á svið og stóðu sig með ágætum. 
Allar upplýsingar um námsframvindu, einkunnir, mætingar, skólagjöld og fleira má finna á MÍNAR SÍÐUR hér á heimasíðunni. 

Þó nokkrar breytingar hafa orðið á kennaraliði okkar. Kristján Guðmundsson kennari við skólann frá upphafi lætur af störfum vegna aldurs og þökkum við honum góð störf. Einnig lætur Ingvar Alfreðsson, Steinþór Gíslason, Una Stefánsdóttir  og Sigmar Þór Matthíasson af störfum og Finnur Sveinbjarnarson fer í árs námsleyfi.  Þökkum við vel unnin störf og óskum þeim góðs gengis í framtíðinni. 
Nýir kennarar hafa verið ráðnir og munu upplýsingar um þá birtast á heimsíðunni á næstu dögum. 

Bendum á starfsáætlun skólans fyrir frekari upplýsingar um skólastarfið næstkomandi haust.  Hér er hlekkur  starfsáætlun skólans.    

Þó nokkrir nemendur tóku grunnpróf og miðpróf sem er eins konar ,,samræmt" próf í tónlist á vegum prófanefndar tónlistarskólanna. Nemendur Tónlistarskóla Árbæjar stóðust prófið með ágætum. 

Tónlistarskóli Árbæjar kennir nú inni í eftirfarandi grunnskólum: 
Ingunnarskóla - Norðlingaskóla - Selásskóla - Ártúnsskóla sem og í húsnæði okkar að Krókhálsi 5. 

Mikil eftirspurn hefur verið eftir því að skólinn kenni víðar og munum við reyna að bregðast við þeim óskum eins og hægt er. 

Skrifstofa skólans er lokuð frá og með 1.júní og opnar að nýju um miðjan ágúst.  Hægt er að senda okkur tölvupóst í sumar. 

Með ósk um gott og gleðilegt sumar! 

Sjáumst í haust 😊

Kennarar og starfsfólk Tónlistarskóla Árbæjar

Í síðustu viku starfsársins brutum við upp kennsluna á ýmsa vegu. Þessir píanónemendur Kristjáns Guðjónssonar í 5. bekk Ingunnarskóla fóru saman í stuttan tónsmíðatíma og sömdu í sameiningu nokkrar stuttar stemningar. Hér gefur að heyra tvær þeirra.