Tónlistarskóli Árbæjar - Í þínu hverfi

Krókhálsi - Ingunnarskóla - Norðlingaskóla - Selásskóla - Ártúnsskóla -

Gítar - Söngur - Bassi

image
Gítar
Söngur/Hljóðfæri

Þverflauta - Saxófónn

Píanó og hljómborð

image
Píanónám
Allir geta lært á píanó! Meira...

Hljómsveitir og samspil

image
Spila
Fjöldi ólíkra samspilshópa ...

Tónlist og tölvur

image
Tækni
Raftónlistarnámskeið

Fréttir

Komið þið sælir ágætu nemendur og forráðamenn við Tónlistarskóla Árbæjar!    VETRARFRI
 
Vetrarfrí við Tónlistarskóla Árbæjar!
 
Nemendur og forráðamenn vinsamlegast athugið:
 
Vetrarfrí verða við Tónlistarskóla Árbæjar
 
  • Föstudaginn 21. oktbóber
  • Mánudaginn 24. oktbóber
  • Þriðjudaginn 25. oktbóber
 
Engin kennsla fer fram við skólann. Flestir grunnskólar eru lokaðir þessa daga.
 
Tónlistarskóli Árbæjar fylgir starfsáætlunum grunnskóla í Árbæjarhverfinu að svo miklu leyti sem það er mögulegt. Starfsáætlun skólans er þannig byggð upp að nemendur munu ekki missa úr tíma, heldur lengist skólaárið um þennan dagafjölda.
 

Vinsamlegast látið skólann vita ef börn verða lengur frá vegna ferðalaga og þess háttar.

 
Það er von okkar að vetrarfríið reynist fjölskyldum kærkomið tækifæri til að njóta skemmtilegra samvista.

Ágætu nemendur og forráðamann

Við þökkum ánægjulegt samstarf á árinu og sendum hér með slóð inn á Facebook síðu okkar. Þar má m.a. finna myndir af tónleikum á skólaárinu. 
Allar upplýsingar um námsframvindu, einkunnir, mætingar, skólagjöld og fleira má finna á MÍNAR SÍÐUR hér á heimasíðunni. 

Þó nokkrar breytingar hafa orðið á kennaraliði okkar. Andri Ólafsson, Ingvar Alfreðsson og Helgi Reynir Jónsson láta af störfum og þökkum við kærlega vel unnin störf og óskum þeim góðs gengis í framtíðinni. Nýir kennarar hafa verið ráðnir og munu upplýsingar um þá birtast á heimsíðunni síðar. 

Við bendum á starfsáætlun skólans fyrir frekari upplýsingar um skólastarfið næstkomandi haust.     

Þó nokkrir nemendur tóku grunnpróf sem er eins konar ,,samræmt" próf í tónlist á vegum prófanefndar tónlistarskólanna. Nemendur Tónlistarskóla Árbæjar stóðust prófið með ágætum. 

Tónlistarskóli Árbæjar kennir nú inni í eftirfarandi grunnskólum: 
Ingunnarskóla - Norðlingaskóla - Selásskóla - Ártúnsskóla- Árbæjarskóla sem og í húsnæði okkar að Krókhálsi 5. 

Skrifstofan opnar að nýju um miðjan ágúst. Hægt er að senda okkur tölvupóst í sumar. 

Með ósk um gott og gleðilegt sumar! 

Sjáumst í haust 😊

Kennarar og starfsfólk Tónlistarskóla Árbæjar

Hér er að finna efnisskrár fyrir vortónleika  Tónlistarskóla Árbæjar 18.maí 2022

Smellið á hlekkinn til að opna efnisskrána. 

Tónleikar kl. 18.00 í Guðríðarkirkju 

Tónleikar kl. 19.15 í Guðríðarkirkju 

Einkunnir, umsagnir og aðrar upplýsingar um nám nemenda er að finna hér á þessari síðu undir MÍNAR SÍÐUR   (Rafræn skilríki) 

Góða skemmtun! 

 

 

Hér er að finna efnisskrár fyrir tónleikana í Guðríðarkirkju 17.maí 2022

Smellið á hlekkinn til að opna efnisskrána. 

Tónleikar kl. 18.00 í Guðríðarkirkju 

Tónleikar kl. 19.15 í Guðríðarkirkju 

Einkunnir, umsagnir og aðrar upplýsingar um nám nemenda er að finna hér á þessari síðu undir MÍNAR SÍÐUR   (Rafræn skilríki) 

Góða skemmtun! 

 

 

Hér er að finna efnisskrár fyrir tónleikana í Árbæjarkirkju 16.maí 2022

Smellið á hlekkinn til að opna efnisskrána. 

Tónleikar kl. 18.00 í Árbæjarkirkju 

Einkunnir, umsagnir og aðrar upplýsingar um nám nemenda er að finna hér á þessari síðu undir MÍNAR SÍÐUR   (Rafræn skilríki) 

Góða skemmtun! 

 

 

Endurinnritun fyrir næsta skólaár 2022-2023     2022 04 28 15 38 14
 
 

Frestur til þess að ganga frá endurinnritun og greiðslu staðfestingagjalds er framlengt til 15.maí næstkomandi

Þangað til að staðfestingargjald hefur verið greitt skoðast endurinnritunin ófrágengin. Ef nemandi hyggst ekki stunda nám á næsta ári biðjum við vinsamlegast að forráðamenn láti vita af því.

Staðfestingargjaldið er 8.000 kr. sem er óendurkræft en gengur upp í skólagjöld næsta skólaárs.

Hvernig greiði ég?
Við biðjumst velvirðingar á að Nóri greiðslukerfið hefur ekki verið í lagi síðustu daga og margir lent í vandræðum með að greiða þar inni.

Við biðjum því vinsamlegast að staðfestingargjaldið sé lagt inn á reikning skólans.
bankaupplýsingar: 0137 26 5406 kennitala 540699 2329 og kvittun send á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.


(Skólagjöld verða svo til innheimtu í haust og dregst þá staðfestingargjald frá þeirri upphæð. )

 
 Nauðsynlegt er einnig að ganga frá umsókn á rafrænni Reykjavík, fyrri umsóknir gilda aðeins í ár.    https://rafraen.reykjavik.is
 
Umsókn skilist einnig hjá skólanum sjálfum hér  Endilega uppfærið úreltar upplýsingar s.s. tölvupóst og símanúmer. Slóðin á umsóknir af heimasíðu skólans er að finna hér
 
Með góðri kveðju 
Stefán S. Stefánsson 
Skólastjóri Tónlistarskóla Árbæjar

587-1664

tonarb@tonarb.net

Heimilisfang

KRÓKHÁLS 5 og 5a
KRÓKHÁLSI 5 OG 5A
110 REYKJAVÍK
110 REYKJAVÍK

Skrifstofa

Mánudag til föstudags
MÁNUDAG - FIMMTUDAGS
09:00 - 17:00 (GMT 0)
14.00 - 16:00