Salient is an excellent design with a fresh approach for the ever-changing Web. Integrated with Gantry 5, it is infinitely customizable, incredibly powerful, and remarkably simple.
DownloadEndurinnritun fyrir veturinn 2015-2016 er hafin.
Ágæti nemandi / forráðamaður.
Að venju er aðsókn í Tónlistarskóla Árbæjar mikil og myndast því biðlistar við skólann. Þess vegna er nauðsynlegt að nemendur sem ætla að halda áfram að stunda nám við skólann næsta vetur, endurinnriti sig nú til þess að tryggja skólavist.
Endurinnritun þarf að vera lokið fyrir 30. apríl n.k.
Nauðsynlegt er að ganga frá umsókn á rafrænni Reykjavík https://rafraen.reykjavik.is
Staðfesta þarf innritun með staðfestingargjaldi kr. 14.000.- sem er óendurkræft en gengur upp í skólagjöld næsta skólaárs.
Staðfestingargjald má greiða beint inn á reikning:
Landsbanka Íslands 0137 - 26 - 23727,
kennitala Tónlistarskóla Árbæjar: 530795-2179.
(Vinsamlegast tilgreinið kennitölu fjárhaldsmanns og nafn nemanda sem skýringu.)
Athugið að einnig má ganga frá greiðslu símleiðis. Skrifstofa Tónlistarskóla Árbæjar er opin alla virka daga frá kl. 14.00 til 16.00
Þangað til að staðfestingargjald hefur verið greitt skoðast endurinnritunin ófrágengin. Vinsamlegast sendið kvittanir á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Með sumarkveðju og þökk fyrir gott samstarf á vetrinum sem er að líða!
Stefán S. Stefánsson
Skólastjóri Tónlistarskóla Árbæjar
Söngdeild Tónlistarskóla Árbæjar hélt sinn fyrsta söng-tónfund rétt fyrir páskafrí.
Markmiðið var að hrista hópinn saman og var mikið sungið og haft gaman! Söngkennari er Erla Stefánsdóttir og koma söngnemendur meðal annars úr Árbæjarskóla, Norðlingaskóla, Ingunnarskóla, Sæmundarskóla, Fossvogsskóla og menntaskólum í Reykjavík.
Eftir annasama prófaviku hér í Tónlistarskóla Árbæjar er nú brostið á páskafrí. Kennslan hefst aftur þriðjudaginn 29.mars
Gleðilega páska!
Tónleikaviku Tónlistarskóla Árbæjar lauk með tónleikum í Selásskóla - Á sal skólans. Þar léku nemendur fyrir fullum sal af fólki og vart hefði verið hægt að koma mörgum til viðbótar í sæti. Í skemmstu máli má frá því segja að þetta voru fjölbreyttir og skemmtilegir tónleikar þar sem nemendur styttra sem lengra komnir léku við hvurn sinn fingur.
Sjá fleiri myndir frá tónleikunum hér á Facebook síðu okkar.
Tónleikar í Norðlingaskóla voru haldnir 9. mars. Fjölbreyttur hópur nemenda spilaði í Glym og gerði góða lukku. Samspilið lék We are The Campions við góðar undirtektir.
Sjáið fleiri myndir inn á Facebook síðu okkar
Vel heppnaðir tónleikar í Ingunnarskóla fóru fram á þriðjudaginn í þessari viku og komu fram nemendur og fluttu verk sín fyrir fullum sal af gestum. Skemmst er frá því að segja að nemendur voru sjálfum sér og Tónlistarskóla Árbæjar til sóma.
Nokkrar myndir til viðbótar má sjá frá tónleikunum hér á Facebook síðu skólans.
Tónleikarnir eru þáttur í tónleikaröð skólans en alls fóru fram þrennir tónleikar í þessari viku.
Framkoma nemenda á slíkum tónleikum er mikilvægur þáttur í tónlistarnámi. Slík framkoma er þjálfun og eykur öryggi nemenda gagnvart því að koma fram fyrir áheyrendur og flytja tónlist sína. Það er ekkert sem kemur í stað þessarar þjálfunar annað en að einfaldlega koma fram á tónleikum.