Sumardagurinn fyrsti

Frí við Tónlistarskóla Árbæjarsolskin

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn!

 

Endurinnritun fyrir veturinn 2012-2013 er hafin!

Að venju er aðsókn í Tónlistarskóla Árbæjar mikil og myndast því biðlistar við skólann.  Þess vegna er nauðsynlegt að nemendur sem ætla að halda áfram að stunda nám við skólann næsta vetur, endurinnriti sig nú til þess að tryggja skólavist.

Endurinnritun þarf að vera lokið fyrir 4. maí  n.k.

Nauðsynlegt er að ganga frá endurinnritun með tölvupósti á eftirfarandi netfang   Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og á rafrænni Reykjavík www.rvk.is

Fram þarf að koma:  nafn, kennitala, heimilisfang, sími og hljóðfæri nemenda.  

Staðfesta þarf innritun með staðfestingargjaldi 
Þangað til að staðfestingargjald hefur verið greitt skoðast endurinnritunin ófrágengin.

Nánar hér um greiðslu staðfestingargjalds

 

Kennsla hafin eftir páskafrí

Kennsla við skólann er hafin samkvæmt starfáætlun.
 

Starfsemin að undanförnu

Vel heppnaðir tónfundir í Norðlingaskóla, Ingunnarskóla og Fylkishöll. 

Nemendur frá Tónlistarskóla Árbæjar komu fram á  Stóru upplestrarkeppninni sem haldin var fimmtudaginn 22.mars í Árbæjarkirkju og stóðu sig frábærlega vel. 

Nemendur frá Tónlistarskóla Árbæjar komu fram í Maríuhúsi - Þar sem fram fer dagþjálfun fyrir fólk með Alzheimerssjúkdóminn. Nemendurnir ásamt kennara sínum Guðbjörgu Ragnarsdóttur gerðu mikla lukku. paskaungi

Kennsla hefst að loknu páskafríi miðvikudaginn 11.apríl 

Gleðilega páska!

 

 

Fréttir

Tónfundir við Tónlistarskóla Árbæjar 

Tónfundir verða haldnir á eftirfarandi tímum við Tónlistarskólann: 

  • Norðlingaskóli 27.mars 2012 kl. 18.00
  • Ingunnarskóli miðvikudaginn 28.mars kl. 18.00
  • Fylkishöll fimmtudaginn 29.mars kl. 18.00

frett_mars_2012

Allir velkomnir! 

Páskafríið hefst 2.apríl og kennsla hefst aftur miðvikudaginn 11.apríl. 

 

 

Síða 1 af 4

«FyrstaFyrri1234NæstaSíðasta»
Auglýsing
Secured by Siteground Web Hosting