Umsóknir um nám við Tónlistarskóla Árbæjar
Reykjavíkurborg hefur nú aflétt aldurstakmörkunum í tónlistarnámi og geta því allir sótt um nám við tónlistarskóla, sama á hvaða aldri þeir eru.
Hægt er að sækja um nám hjá tónlistarskólanum hér á síðunni og í Rafrænni Reykjavík.
Nánari upplýsingar í Tónlistarskóla Árbæjar sími 587 1664 og Símaver Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11.
Vinsamlegast athugið að við endurinnritun er nauðsynlegt að greiða staðfestingargjald kr. 14.000.
Hafi staðfestingargjald ekki verið greitt fyrir 1.maí ár hvert skoðast nemandi hættur og teknir verða inn nemendur af biðlistum.
Hægt er að greiða staðfestingargjald beint á reikning skólans.
Eftirfarandi eru reikningsupplýsingar:
Tónlistarskóli Árbæjar
Kt. 530795-2179
Banki-137- höfuðbók 26, Reikn 23727