Creativity

Innovation

Originality

Imagination

 

Salient

Salient is an excellent design with a fresh approach for the ever-changing Web. Integrated with Gantry 5, it is infinitely customizable, incredibly powerful, and remarkably simple.

Download

Fréttir

Vortónleikar í Árbæjarsafni fimmtudaginn 15.maí kl. 17:00 eru haldnir í húsinu Lækjargata, sem staðsett er á torginu við innganginn.
Efnisskrá tónleikanna má finna HÉR

Góða skemmtun! 

erha

Efnisskrá vortónleikanna í Guðríðarkirkju í dag, þriðjudaginn 14.maí 2025 má finna HÉR

Góða skemmtun!

2025 05 14 12 47 13

Efnisskrá fyrir vortónleikana í Árbæjarkirkju þriðjudaginn 13.maí má finna HÉR

Góða skemmtun!

 

ENDURINNRITUN FYRIR SKÓLAÁRIÐ 2025-2026

Nemendur sem ætla að halda áfram námi skólaárið 2025-2026 þurfa að fylla út eyðublað HÉR eins og um nýja umsókn sé að ræða

Þetta er gert til að uppfæra allar helstu og nauðsynlegustu upplýsingar.

Ef nemandi ætlar ekki að halda áfram námi, þarf að láta kennara eða skrifstofu skólans vita sem fyrst.

Staðfestingargjaldið er 14.000 kr., óendurkræft, en það dregst frá skólagjöldum næsta skólaárs.

Tímabilið til að ganga frá staðfestingu og greiðslu staðfestingargjalds er 17. apríl – 5. maí 2025.

Forráðamenn fá greiðslukröfu í gegnum Sportabler og fer greiðslan eingöngu fram þar.

5. maí lokar Sportabler fyrir greiðslu staðfestingargjalds.


Þangað til staðfestingargjaldið hefur verið greitt telst skólavist óstaðfest.



PÁSKAFRÍ

Síðasti kennsludagur fyrir páskafrí er á morgun, föstudaginn 11. apríl.

Tónlistarskólinn og skrifstofa verða lokuð 14.-21. apríl og kennsla hefst aftur þriðjudaginn 22. apríl.

Engin kennsla er á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 24. apríl.


Páska- og tónlistarkveðjur,

Tónlistarskóli Árbæjar

Skrifstofa skólans er lokuð í dag, þriðjudaginn 8.apríl.

Hægt er að senda erindi á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Ágætu nemendur og forráðamenn   oskudagur

Samkvæmt kennsluáætlun er engin kennsla við Tónlistarskóla Árbæjar á morgun, miðvikudaginn 5. mars (Öskudag). 

Með góðri kveðju og væb 😊

Starfsfólk og kennarar Tónlistarskóla Árbæjar