Frábærir tónleikar með krökkunum í Félagsmiðstöðinn Holtinu!
Tónlistarskóli Árbæjar í samvinnu við félagsmiðstöðina Holtið í Norðlingaholti stóð fyrir skemmtilegum tónleikum í húsakynnum Holtsins í Mest húsinu mánudagskvöldið 15.maí. Þar komu fram fjórar hljómsveitir úr tónlistarskólanum (yngra og eldra Norðlingaskóla og yngra og eldra samspil Krókhálsi) í bland við söngnemendur frá Erlu Stefánsdóttur söngkennara.