Nemendur og forráðamenn vinsamlegast athugið:
Vetrarfrí verða við Tónlistarskóla Árbæjar: Fimmtudaginn 15.febrúar, föstudaginn 16.febrúar og mánudaginn 19.febrúar (starfsdagur kennara)
Engin kennsla fer fram við skólann.
Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 20.febrúar
Tónlistarskóli Árbæjar fylgir starfsáætlunum grunnskóla í Árbæjarhverfinu að svo miklu leyti sem það er mögulegt.
Starfsáætlun skólans er þannig byggð upp að nemendur munu ekki missa úr tíma, heldur lengist skólaárið um þennan dagafjölda.
Vinsamlegast látið skólann vita ef börn verða lengur frá vegna ferðalaga og þess háttar.
Það er von okkar að vetrarfríið reynist fjölskyldum kærkomið tækifæri til að njóta skemmtilegra samvista.
með góðri kveðju
Skólastjóri