Salient is an excellent design with a fresh approach for the ever-changing Web. Integrated with Gantry 5, it is infinitely customizable, incredibly powerful, and remarkably simple.
DownloadSkemmtilegir tónleikar voru haldnir á sal í Selásskóla á fimmtudaginn 5.nóvember og stóðu nemendur og léku nemendur við góðan orstí tónleikagesta.
Skoðið nokkrar myndir hér frá tónleikunum í Selásskóla
Í þar næstu viku er foreldravika. Þá er foreldrum velkomið að mæta í tíma með barninu og fylgjast með, spyrja og ræða almennt um nám nemandans. Sjá starfsáætlun hér
Skólastjóri
Vel heppnaðir tónleikar voru haldnir þriðjudaginn 3.nóvember í Ingunnarskóla. Einstaklega fjölbreytt og skemmtilegt.
Næstu tónleikar eru í Selásskóla á fimmtudaginn 5.nóvember kl. 18.00 og í næstu viku miðvikudaginn 11.nóvember kl. 18.00 í Norðlingaskóla.
Skoðið myndir hér frá tónleikunum í Ingunnarskóla
Í þar næstu viku er foreldravika. Þá er foreldrum velkomið að mæta í tíma með barninu og fylgjast með, spyrja og ræða almennt um nám nemandans. Sjá starfsáætlun hér
Skólastjóri
Tónlistarskóli Árbæjar heldur 10 vikna námskeið um notkun tölva í tónlistarsköpun. Námskeiðið hefst fimmtudaginn í október og er lýkur í janúar 2016
Námskeiðið er hugsað fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna.
Kennt verður á fimmtudögum kl 18:30 til 19:30 að Krókhálsi 5
Hópurinn kemur til með að taka upp hljóð, hlaða þeim í tölvu og vinna úr þeim skemmtilega tónlist undir handleiðslu tveggja reyndra kennara.
Notast verður við eftirfarandi opinn hugbúnað: Reaper, Audacity og Soundtrap.
Nemendur þurfa hvorki að hafa reynslu af tónlist né að eiga nein tæki til tónsköpunar.
Öll tæki og tól eru á staðnum, en gott er ef nemendur eiga eða hafa afnot af fartölvum eða snjalltækjum að hafa þær með.
Kennslan fer fram á Krókhálsi 5 - Tónfræðistofu. Hvert skipti er 60 mínútur.
Birt með fyrirvara um þáttöku.
Tilvalið fyrir börn sem vilja prófa hljóðfæranám krakkar pianonamskeid
Tónlistarskóli Árbæjar heldur 10 vikna píanónámskeið fyrir byrjendur og styttra komna í Ingunnarskóla og Krókhálsi.
Kennt er í litlum hóptímum (c.a. 4 saman í hóp) undir umsjón menntaðs kennara. Hver tími er 40 mín.
Námskeiðið hefst frá og með miðvikudeginum 7. október 2015
Í tímum er notast er við rafpíanó með eðlilegum áslætti. Hver nemandi er með eitt píanó.
Sameiginleg verkefni eru unnin í tímum og námskeiðið notast við speglaða kennslu, (flipped classroom) þ.e. námsefni er tekið upp á myndband fyrir nemendur. Þeir geta svo nálgast kennsluefnið á vefsíðu námskeiðsins.
Tónlistarskóli Árbæjar býður upp á gítarfornám fyrir byrjendur og styttra komna nú í haust.
Kennt er í litlum hóptímum (4 saman í hóp) í umsjón gítarkennara. Hver tími er ein kennslustund (40 mín)
Í tímum eru notaðir gítarar í hæfilegri stærð fyrir yngri nemendur. Sameiginleg verkefni eru unnin í tímum.
Námskeiðið notast við speglaða kennslu, (flipped classroom) þ.e. námsefni er tekið upp á myndband fyrir nemendur. Þeir geta svo nálgast kennsluefnið á vefsíðu námskeiðsins. Einnig fá nemendur kennsluefni í tímum.
Markmið námsins er fyrst og fremst að nemendur getið spilað einföld lög og æfingar en minni áhersla á nótnalestur.
Leiðbeinandi aldur er 8 ára og eldri. (Yngri nemendum er bent á forskóla Tónlistarskóla Árbæjar).
Stefnt er að því að tímarnir verði sem fyrst eftir skólatíma. Ef unnt reynist að koma námskeiði fyrir á skólatíma mun það gert í samráði við foreldra og umsjónarkennara.
Námskeiðið er tilvalið fyrir börn sem sýnt hafa hljóðfæranámi áhuga og fá þannig tækifæri til að kynnast hljóðfæranámi í raun.
Umsóknir sendist inn hér
Frístundakort Reykjavíkurborgar má nota til greiðslu þáttökugjalda.
Upplýsingar um verð og aðra tilhögun má finna á heimasíðu Tónlistarskóla Árbæjar
Birt með fyrirvara um þáttöku.
Höfum tekið í notkun nýja heimasíðu sem er farsíma og spjaldtölvuvæn.
Síðan mun bjóða upp á ýmsa nýja möguleika sem við kynnum síðar.